Meira ástandið á heimilinu
Gyða er veik heima. Fór í vinnuna í morgun en kom heim aftur vegna slappleika. Ég fór með stelpurnar í leikskólann í morgun. Leikskjólastjórinn tjáði mér að vegna veikinda starfsfólks þurfum við að sækja þær klukkan tvö í dag.
Fékk svo símatal frá Ölduselsskóla, Áróra Ósk var að kvarta undan hausverk. Ég fór og sótti hana og skutlaði heim. Hún er afar slöpp, ældi á bílastæðinu við skólann.
Ég er bara hress!
Athugasemdir
sirry - 08/11/04 13:45 #
æji vonadi batnar stelpunum sem fyrst. Ég hef aldrei lent í né heyrt að það þurfi að sækja börn snemma vegna veikinda á leikskóla. Ástandið hlýtur að vera rosalega slæmt.