Exem andskotans
Alveg ljóst að átta klukkustundir í heitum potti og frosti hafa ekki farið sérstaklega vel með húðina, er óvenju slæmur af exemi á kálfum og framhandlegg.
Klæjar geðveikt og hef hvorki gáfur né sjálfstjórn til að klóra mér ekki. Búinn að maka á mig sterakremi en það virkar lítið.
Reyndar er ég þokkalegur akkúrat þessa stundina, en það endist ekkert.
Er yfirleitt nokkuð góður en versna á veturnar eða þegar ég fer mjög reglulega í sturtu (ræktina).
Argh.
Athugasemdir
jonarnar - 25/10/04 14:28 #
Skondið með sturtuna, ég skána einmitt við reglulegar sturtuferðir, en þá er trikkið mitt að fara alls ekki í mjög heitar sturtur. Annars missir maður náttúrulegu húðfituna. Mín uppskrift er annars að drekka mikið vatn, regluleg hreyfing og forðast stressið.