Dagurinn
Slapp að mestu við þynnku þrátt fyrir ágæta drykkju í gærkvöldi. Smakkaði absinth í fyrsta sinn, rifjaði upp spíradrykkjuna í gamla daga.
Sóttum stelpurnar til mömmu og pabba um tvö í dag. Þær voru hressar og kátar.
Hitti Vantrúarseggi og átti ágætt spjall, stoppaði þó frekar stutt. Missti af Liverpool leiknum sem var víst stórmerkilegur.
Spilaði innibolta, mættum bara sex.
Hreinsaði njósna-auglýsingahugbúnað af ferðavélinni hans pabba, hef sjaldan séð annað eins, notaði bæði adaware og spysweeper ásamt því að hreinsa út úr registry og eyða skrám. Þarf að hreinsa betur þegar hann kemur aftur til landsins, er að fara út í fyrramálið.
Leigði DVD disk og við erum að glápa núna, tók Paycheck þar sem ég held það sé sæmilega fyrirhafnalítil mynd.