Loks í ræktina aftur
Sökum utanlandsferðar, hátíðar og aumingjaskapar hafði ég ekki mætt í ræktina í um þrjár vikur. Gyða svo að segja rak mig í ræktina og ég fór sem betur fer. Merkilegt hvað það er alltaf erfitt að koma sér af stað aftur, jafnvel þegar maður hefur verið frekar duglegur - ef maður tekur pásu er mín reynsla að það þurfi átak til að koma sér af stað. Þetta er sérlega skrítið í ljósi þess að mér finnst gaman í ræktinni.
Tók ágæta æfingu, skokkaði í 10 mín, lyfti (brjóst, bak og magi) í um 40 mín og skokkaði í 20 mín. Teygði vel og skellti mér svo í gufu.
Kominn tími á að taka smá skurk, frammistaðan undanfarið er skelfileg.