Gyða hafði rétt fyrir sér
Ég vil koma því á framfæri að Gyða hafði rétt fyrir sér.
Hún stakk upp á að kaupa ákveðnar jólagjafir en ég var með aðrar hugmyndir. Var svo ekki með neinar hugmyndir þegar allt kom til alls og á endanum fer ég eftir því sem hún lagði til. Það er einnig við hæfi að benda á að hún hefur alfarið séð um skreytingar, sá um jólakortin og hefur keypt langflestar gjafirnar og pakkað þeim inn.
Jæja, ertu ánægð kona? :-)
Athugasemdir
Sirry - 23/12/03 15:07 #
Hehe alltaf gaman að eiga svona á prenti. Ég myndi ramma þetta inn Gyða. :C)
Sirrý