Hvað þurfa forritarar að læra?
Um daginn rakst ég á lista yfir hluti sem forritarar ættu að læra til að halda sér við
. Að sjálfsögðu týndi ég síðunni og hef ekki fundið hana aftur. Yrði þakklátur ef einhver veit um hvað ég er að tala og gæti vísað mér veginn.
Ég hef alltaf haft gaman af því að grúska og læra eitthvað nýtt og ætla mér að vera sérstaklega duglegur við það næstu mánuði. Hér er semsagt minn listi yfir það sem ég ætla mér að læra (betur) á næstunni.
- .Net Ég hef kíkt á það af og til en ætla að kíkja aðeins betur á það núna. Læra C# og skrifa nokkur lítil forrit. Hef aðeins verið að grúska í þessu síðustu daga.
- XML. Þarf að setja mig betur inn í XML, veit út á hvað það gengur, hef lesið dáldið um það en þarf að prófa að nota það í einhverjum verkefnum. Skilgreina eigin XML skjöl og forrit sem vinna með þau, python hentar víst mjög vel til að vinna með XML skjöl
- Regular expressions. Gríðarlega öflugt verkfæri og nauðsynlegt að kunna þokkalega á þetta. Fínn stuðningur í Python.
- Linux. Ég hef grúskað dáldið í linux í kringum reksturinn á þessum server. Er mellufær í vi og get bjargað mér í flestu með hjálp google. Þarf að læra meira.
- wxPython. Hef grúskað örlítið í þessu, ætla að kynna mér þetta betur og skrifa eitthvað alvöru forrit. Þetta er mjög skemmtilegt framework.
Svo þarf maður að vera duglegur við að viðhalda þeirra þekkingu sem maður hefur, ef maður notar hana ekkert er hætt við að maður ryðgi.
Dettur ykkur fleira í hug?
Tryggvi R. Jónsson - 14/07/03 10:54 #
Það er kannski bara ég en ég myndi setja viðmótshönnun þarna á listann einhversstaðar ;-)
Matti - 14/07/03 11:01 #
Viðmótshönnun á vissulega heima á listanum, ég hef lítið pælt í því síðustu ár. Það síðasta sem ég skoðaði var bókin User Interface Design for Programmers en hana er hægt að lesa á vefnum. Helvíti fín bók, spurning um að renna yfir hana aftur.
Mæli með Joel on Software, fullt af áhugaverðum greinum og alltaf eitthvað fróðlegt á foruminu.
11:07 Ef þetta var dulin gagnrýni á hönnun þessara vefsíðu þá fór það alveg framhjá mér :-)
Tryggvi R. Jónsson - 15/07/03 02:30 #
Nei nei ekkert slíkt :) enda væri ég manna síðastur til að setja út á slíkt... var nú bara almennt skot á íslenska forritara þar sem það vantar oft talsvert uppá að þeir geri sér grein fyrir því að það sé fólk sem komi til með að nota hugbúnaðinn sem hafi enga innsýn í gerð hans heldur eingöngu ,,face-value" notkunarþekkingu.