Hættulegt fíkniefni
Fangelsisdómur fyrir innflutning á hættulegu fíkniefni staðfestur
Takið eftir að það þarf að lesa í gegnum alla fréttina til að komast að því hvað þetta hættulega fíkniefni
er.
dæmdur fyrir innflutning mikils magns hættulegs fíkniefnis til landsins í hagnaðarskyni...tekið fram að hann væri þannig sannur að sök um innflutning mikils magns hættulegs fíkniefnis til landsins í hagnaðarskyni.
Hvað er hér um að ræða? Heróín, kókaín, amfetamín, alsælu? Nei, hættulega fíkniefnið sem fjallað er um í fréttini er kannabis.
Skyldi þessi áhersla hafa eitthvað að gera með þá umræðu sem átt hefur sér stað um kannabisefni á Íslandi undanfarið?
Það er ljóst að miðað við önnur fíkniefni er kannabisefni frekar hættulítið. Ef svarið við því er að öll fíkniefni séu hættuleg, til hvers að tala þá sérstaklega um hættuleg fíkniefni? Hver verður fyrirsögnin þegar einhver verður dæmdur fyrir að flytja inn heróín. Maður dæmdur fyrir að flytja inn rosalega hættulegt fíkniefni
Athugasemdir