vinnan og boltinn.
Ég er semsagt í vinnunni, allt á fullu við að redda Goldmaster. Ég held þetta reddist ;-)
Ætla að skjótast í Sportkaffi í hádeginu til að horfa á leik Liverpool og Middlesbrough. Ég held áfram að styðja mína menn þó ekkert gangi. Ágætt að fá sér líka að éta í leiðinni.
Skýst svo í fótbolta klukkan fimm en skelli mér aftur í vinnu eftir boltann.
14:25
Jæja, leiknum lokið. 1-1 í leik þar sem Liverpool átti 15+ marktækifæri en Middlesbrough 2. :-|
Á leiðinni til baka stoppuð tveir menn mig, ég hélt þeir væru villtir.
"Afsakið" sagðir annar þeirra með skandínavískum hreim "Við viljum bjóða þér í Kirkju á morgun". Ég stökk á hann, fleygði honum í jörðina og hálsbraut hann.
"Nei takk, alls ekki." sagði ég og strunsaði í burtu.
Af hverju nei takk, af hverju ekki bara "drullið ykkur í burtu" ?