Davíð flytur
Davíð Torfi ætlar að flytja næsta sunnudag. Hafði samband við mig í gær til að sjá hvort ég væri ekki til í flutninga, sem ég að sjálfsöðgu er. Var feginn að hann ætlaði ekki að flytja á laugardegi, vegna þess að þá væri hætta á að ég myndi missa af inniboltanum. Jamm, svona hugsar maður. Reyndar verð ég í vinnunni um helgina... en maður hlýtur að geta tekið smá stund í þetta.
En svo var ég að fatta að það er Liverpool leikur í beinni næsta sunnudag, bikarleikur við Crystal Palace. Leikurinn byrjar fjögur, Davíð var að tala um að byrja flutninga klukkan þrjú.
Þetta er spurning um að rusla þessu bara áfram. Þeir verða eflaust öflugir í burðinum, Davíð og Þórhallur.