Áætlunin (og reikningur) fyrir akstur á jeppanum í janúar er ansi langt frá notkun, rúmlega tvöfalt hærri (991 - 450). Þegar ég skoða tölurnar passa þær við meðaltalið síðustu tvö ár, frá skoðun í júlí 2024 til skráningar á kílómetrum 2. janúar, 32km á dag.
Vorum hjá foreldrum mínum á Völlunum um áramótin. Röltum út eftir skaupið og horfðum á flugelda og í stað þess að stilla myndavélinni á þrífót eins og vanalega rölti ég bara um með Insta360 x5 vél og tók myndband.
Dæmi um tengingar
Ég fann ekki upp á frasanum „óða fólkið“, þetta er útúrsnúningur á ruglinu um „góða fólkið“ sem þróaðist yfir í „vók“. „Óða fólkið“ er samt frábært yfir fólkið sem hér er fjallað um!
Ég dundaði mér við það, svona meðan ég var ekki að gera annað í fríinu á Spáni um daginn, að fara yfir helstu íslensku nasistana, rasistana og fylgjendur þeirra á Twitter og kortleggja tengslin. Þetta er óskaplega lítil og einföld vefsíða sem notar d3.js til að reikna út staðsetningu punkta í neti út frá tengingum.
Þessi fugl er rosalega leiðinlegur og þröngsýnn, agalega kantaður.
Stundum langar mig að taka utan um fyrrverandi háværa trúleysingjann sem er með það á heilanum hvað hann* hafi verið leiðinlegur fáviti.
Elsku vinur, þú ert enn ótrúlega leiðinlegur fáviti. Sveppatrippið lagaði ekkert. Enginn kippir sér upp við að kirkjur séu notaðar sem tónleikasalir.
*En sérstaklega allir aðrir trúleysingjar sem tjá sig.
Mannréttindi þarf að verja með valdi og ofbeldi!
Hlutirnir gerast hægt á þessari bloggsíðu enda er ég, eins og flestir bloggarar, afskaplega latur að blogga.
Í framhaldi af samantekt á tvítum @loginTerm, þar sem ég færði rök fyrir því að hann er nasisti, er rétt að skoða félaga hans, nasistann @svennipopp sem notar dulnefið Páll Vilhjálmsson vegna þess að næstum allir þessir nasistar eru nafnlausar gungur. Groyper sem hann notaði áður og sést á skjáskotum hér, er hópur nasista. Afsakið hvað þetta er langt, stutt samantekt er svona: @svennipopp er nasisti.